Eins og á síðasta ári verður aðalfundurinn nú pappírslaus nánast með öllu. Aðeins ársreikningur LS 2013 mun liggja fyrir prentaður. Þá verður veggspjöldum komið fyrir í anddyri Grand Hótel þar sem fundurinn verður haldinn. Mynd af tveimur þeirra má sjá á myndinni hér til hægri sem tekin var í höfuðstöðvum LS á sjávarútvegssýningunni 2014.
Hægt verður að fylgjast með fundinum hér á heimasíðunni og á facebook síðu LS
Allar upplýsingar um fundinn fara í kassann: Aðalfundur 2014
Þar geta félagsmenn skráð sig sem áheyrnarfulltrúar á aðalfundinn, en vegna skipulagningar er slíkt nauðsynlegt. Einnig er hægt að skoða þær tillögur sem teknar verða fyrir á fundinum, sundurliðaðar eftir hverju og einu svæðisfélagi.