30. aðalfundi Landssambands smábátaeigenda lauk í gær. Síðasta verkefni fundarins var að kjósa formann. Einn var í kjöri Halldór Ármannsson formaður LS. Hann fékk rússneska kosningu og er því réttkjörinn formaður Landssambands smábátaeigenda 2014 – 2015.
Halldóri er hér með óskað til hamingju með kjörið.