Makríllinn ætlar að reynast okkur drjúg tekjulind á yfirstandandi fiskveiðiári. Á fyrstu 9 mánuðum ársins hafa verið flutt út 102 þús. tonn af honum heilfrystum og flökum. Útlflutningsverðmæti þess magns nemur alls um 18,3 sem er 7% meira en á sama tíma í fyrra. Allt árið 2013 skilaði 20,2 milljörðum.
Rússar bera höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir hvað varðar þessi viðskipti. Þeirra hlutur er 35% af útflutningsverðmætinu eða um 6,5 milljarðar sem svarar til 31% í heildarmagni. Það vekur athygli að til Hollands hefur 28% af heildarmagninu farið sem svarar til 26% verðmætanna. Verðið þangað á magneiningu eru því fimmtungi lægra en til Rússlands.