Haustrallið slær öll met

Niðurstöður úr haustralli hafa nú verið gerðar opinberar.  Af flestum tegundum veiddist meira en undanfarin ár.  T.d. hefur ekki mælst hærri vísitala í þorski frá upphafi haustralls1996 og í ýsu mældist 2014 árgangurinn sá næst stærsti á tímabilinu, aðeins met árgangurinn 2003 slær honum við í fyrstu mælingu. 
Sérlega háar vísitölur mælast nú í þremur árgöngum þorsks 2009 (5 ára), 2011 ( 3 ára) og 2012 (2 ára).  
Meðfylgjandi mynd sýnir heildarvísitölu ýsu í vorralli 1985-2014 – grátt svæði og haustralli 1996-2014 – rauð lína
Vístala haustrall.jpg