Landssamband smábátaeigenda smábátaeigenda birtir nú í þriðja sinn lítraverð á litaðri olíu við bátadælu. Eins og í nóvember er Skeljungur með lægsta verðið, auk þess að fyrirtækið er með mestu lækkun á tímabilinu. Verð á lítranum hjá Skeljungi er 143,90 m. vsk sem er 11,1% lægra verð en í nóvember.
Munurinn á hæsta og lægsta verði er nú 5,10 kr. sem jafngildir 3,4% sem verð hjá N1 er hærra en hjá Skeljungi.
Eins og í fyrri könnunum eru öll verð án afsláttar.
Félagsmenn eru eins og áður hvattir til að bera verðið sem hér er birt saman við þann afslátt sem þeir fá.
Verð á lítra 22. desember 2014
Skeljungur 143,90 kr / lítri
OLÍS 146,80 kr / lítri
N1 149,00 kr / lítri