Kæru félagar. Þið sem skoðuðuð Blossa ÍS og Óla á Stað GK sem voru til sýnis á Sjávarútvegssýningunni tókuð eflaust eftir að merkið okkar var á síðunni á báðum bátunum. Þetta vakti mikla athygli og eftir þó nokkuð margar fyrirspurnir fór LS á stúfana og fékk tilboð í sams konar merki.
Búið er að semja við prentsmiðju og verðið fyrir tvö merki (á bæði borð) þegar LS hefur tekið þátt í kostnaði er einungis 2.000 kr. Auðvelt er að líma þetta á en einnig ættu flestir málarar að hafa þekkingu til að smella þessu á bátana ykkar. Merkið er 95cm á lengd og 17cm á hæðina.
Það væri ánægjulegt að sjá sem flesta félagsmenn skella merkinu okkar á bátana og þó þetta sé til gamans gert er þetta merki um samstöðu okkar og styrk félagsins. Ekki spillir fyrir að taka svo mynd af meistaraverkinu og senda okkur.