Meðalverð á slægðum þorski sem seldur var á fiskmörkuðum í nýliðnum janúar var 23,7% hærra en í sama mánuði í fyrra. Óslægður þorskur hækkaði einnig eða um 17,5%.
Þá hækkaði slægð ýsa um 7,6% á sama tíma en verð á óslægðri stóð í stað.
Nokkur samdráttur var í magni sem ekki þarf að koma á óvart þegar horft er til veðurs, 22% minna var selt af ýsu og þorski var samdrátturinn tæp 13%.
Meðalverð á kíló af slægðum þorski í janúar var 377 krónur sem var 10 kr hærra en slægð ýsa seldist á. Aftur á móti var meðalverð á óslægðum þorski og ýsu það sama 334 krónur .
Aukið framboð af undirmálsýsu
Áhugavert er að sjá að þrátt fyrir kvótaniðurskurð í ýsu og endalausar mælingar Hafrannsóknastofnunara á lélegri nýliðun í henni að þá skuli framboð á undirmáli aukast á fiskmörkuðum. 40% meira var selt af undirmálsýsu nú í janúar, en 2014.