Mikil fækkun skyndilokana

Fjöldi skyndilokana 2014 voru 89 talsins.  Það er um helmingsfækkun frá 2013, þegar lokunum var beitt í alls 164 skipti.   Frá aldamótum hafa skyndilokanir aðeins tvisvar verið færri 2011 – 71 og 2004 – 73 talsins.
Screen Shot 2015-02-18 at 19.24.14.png
 
Árið í ár virðist hins vegar ekki fara jafnvel af stað.  Alls er búið að loka í 23 skipti en á sama tíma í fyrra var fjöldi skyndilokana aðeins 13.
Viðmiðunarmörk sem forsenda skyndilokunar er í þorski þegar 25% aflans er undir 55 cm að lengd og fyrir ýsu 30% undir 45 cm.