Byggðakvóti 2013/2014 – samantekt

Á síðasta fiskveiðiári voru alls 8.727 þorskíldistonn ætluð til ráðstöfunar í sérstakar byggðaaðgerðir.  Veiðiheimildirnar samanstóðu annars vegar af byggðakvóta sem úthlutað hefur verið undanfarin ár til stuðnings byggðarlögum – 6.824 þ.íg.tonn – og hins vegar byggðakvóta Byggðastofnunar – 1.903 þ.íg.tonn.  
 
Alls var byggðakvóta fiskveiðiárið 2013 / 2014 skipt milli 32 sveitarfélaga sem deildist á 46 byggðarlög og úthlutað var til 418 báta og skipa sem áttu þar heimilsfesti.   Af einstaka sveitafélögum kom mest í hlut Snæfellsbæjar 734 þ.ígildi tonn, þar fékk Flateyri mest byggðarlaga 396 þ.íg. tonn og Gullveri  NS var úthlutað mestum kvóta 149 þ.íg.tonnum. 
Byggðastofnun gerði samning við alls 35 útgerðafélög í sex byggðarlögum og skipti milli þeirra 1.500 þ.ígildum.  Samningarnir eru til þriggja ára og er skiptingin þannig:
Bakkafjörður 150 þ.íg.tonn
Raufarhöfn 400 þ.íg.tonn
Drangsnes 150 þ.íg.tonn
Suðureyri         400 þ.íg.tonn
Tálknafjörður 400 þ.íg.tonn
Taflan hér að neðan sýnir þær veiðiheimildir sem teknar voru frá til  byggðaaðgerða á fiskveiðiárinu 2013 / 2014 og á yfirstandandi fiskveiðiári.
Tegundirnar – þorskur, ýsa, ufsi, steinbítur eru í óslægðum tölum.
Screen Shot 2015-02-27 at 18.50.32.png

Tillaga LS um byggðakvóta er eftirfarandi:
Byggðakvóti verði nýttur af dagróðrabátum

og komi sem ívilnun við löndun