Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur auglýst námskeið í vélgæslu. Námskeiðið hefst nk. mánudag 9. mars og stendur til 21. mars. Námið veitir réttindi til að vera vélavörður á bát með 750 kW vél og allt að 12 metrum.
Þá hefur skólinn einnig auglýst framhaldsnámskeið, sem veitir rétt til að vera yfirvélstjóri á skipi með 750 kW vél og minni og allt að 24 metrum.