Hrein raunávöxtun hjá Gildi lífeyrissjóði á árinu 2014 var 8,8%. Það verður að teljast með miklum ágætum, en sambærileg tala 2013 var 5,3%. Ávöxtunin er sú þriðja besta á sl. 10 árum. Aðeins árin 2005 – 17,8% og 2006 – 9,6%, skiluðu betri ávöxtun.
Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt er heildarstaða sjóðsins neikvæð um 0,9% sem er mikil breyting frá sl. ári þegar 3,5% vantaði upp á eignir sjóðsins svo hann ætti fyrir heildarskuldbindingum. Þróunin hefur verið upp á við frá árinu 2008 þegar staðan var neikvæð um 13%.
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl n.k. kl 17:00 á Grand Hótel Reykjavík.