Gríðarleg aukning hefur orðið á hrognkelsaafla milli ára. Alls hafði við upphaf grásleppuvertíðar 20. mars sl. verið landað 45 tonnum á móti 13 tonnum í fyrra.
Skiptingin er þannig:
2015 2014
Grásleppa 20 tonn 3 tonn
Rauðmagi 25 tonn 10 tonn
Það vekur athygli að þrátt fyrir ákvæði í reglugerð um að skylt sé að sleppa allri grásleppu sem er lifandi í netum skuli netabátar hafa landað 7 tonnum.