Mánaðarleg verðathugun Landssambands smábátaeigenda á litaðri olíu við bátadælu er nú birt í sjötta sinn. N1 er með lægsta verðið 143,90 kr / lítri.
N1 hækkaði verð aðeins um 1,80 kr frá síðustu athugun. Hækkun hjá OLÍS, sem var með lægsta verð í febrúar, var 11,80 kr og hjá Skeljungi hækkaði lítrinn um 3,80 krónur.
Munur á hæsta og lægsta verði er aðeins 1 króna sem er sá minnsti sem mælst hefur í þau sex skipti sem verðathugun LS hefur staðið yfir. Aðeins 0,69% munar því á hæsta og lægsta verði, sem verður að teljast ansi rýrt á markaði þar sem hörð samkeppni ríkir.
Eins og í fyrri könnunum eru öll verð án afsláttar.
LS mun halda áfram verðathugun og hvetur félagsmenn að vera vel á verði varðandi afslætti sem fyrirtækin bjóða frá því verði sem hér er birt.
Verð á lítra 24. mars 2015
N1 143,90 kr / lítri
Skeljungur 144,90 kr / lítri
OLÍS 144,90 kr / lítri