Landssamband smábátaeigenda hefur ítrekað kröfu sína um auknar strandveiðar á komandi vertíð. Krafa LS er að aflaviðmið verði hækkað um 2.000 tonn, fari í 10.600 tonn.
Aðgerðin er afar mikilvæg fyrir þróun veiðanna, að þær sitji ekki eftir þegar fyrirsjáanleg aukning verður á þorskafla og endurskipulagning „pottana.
Með aukningu yrði komið til móts við kröfur hinna dreifðu byggða um aukna atvinnu og umsvifa.
Einnig yrði svarað kalli ferskfisksútflytjenda um aukið framboð yfir sumarið, þegar stærri bátar taka sér gjarnan frí. Samanlagt taka þessir þættir til fiskvinnslu, sjómennsku og þjónustu sem skilar sér í auknum tekjum viðkomandi staða.
Gjarnan er spurt hvar á að taka aflann þegar aukning er annars vegar. Því er einfalt að svara:
Hann kæmi frá útilegubátum sem þegið hafa byggðakvóta, þorskeldi og skel- og rækjuuppbótum.
LS hefur lagt til að aukningunni verði deilt niður á svæði m.t.t. fjölda báta. Hún yrði til þess að fjölga veiðidögum á svæðum A og B.
Á árinu 2014 var skipting veiðidaga og fjöldi báta þannig:
Svæði A: 29 dagar [Arnarstapi – Súðavík] 238 bátarSvæði B: 45 dagar [Strandir – Grýtubakkahr.] 140 bátarSvæði C; 55 dagar [Þingeyjarsveit – Djúpivogur] 147 bátarSvæði D: 64 dagar [Suðurland – Faxaflói] 124 bátar
Nokkrar staðreyndir um strandveiðar