Mánaðarleg verðathugun Landssambands smábátaeigenda á litaðri olíu við bátadælu er nú birt í sjöunda sinn. Nú ber svo við að öll félögin sem könnunin nær til – N1, OLÍS og Skeljungur eru með sama verð á lítranum 144,90.
Verð er því óbreytt frá síðustu könnun 24. mars sl. hjá Skeljungi og OLÍS, en hækkar um krónu hjá N1.
Eins og í fyrri könnunum eru öll verð án afsláttar.
LS mun halda áfram verðathugun og hvetur félagsmenn að vera á verði varðandi afslætti sem fyrirtækin bjóða frá því verði sem hér er birt.
Verð á lítra 24. apríl 2015
Skeljungur 144,90 kr / lítri
OLÍS 144,90 kr / lítri
N1 144,90 kr / lítri