Strandveiðar – hversu mikið má veiða

Fyrsti dagur strandveiða 2015 er nk. mánudag 4. maí.
Eins og undanfarin ár er leyfilegur afli sem koma má með að landi í hverri veiðiferð 650 þorskígildi.   Veiði menn eingöngu þorsk er hámarkið 774 kg.  Sé eingöngu um ufsa að ræða í tiltekinni veiðiferð er hámarkið óslægt 955 kg.
Við útreikninga til þorskígilda skal margfalda óslægðan af með eftirfarandi stuðlum:
Þorskur         0,8400
Ufsi         0,6804
Ýsa         1,0920
Karfi         0,8500
Steinbítur         0,8550
Langa 0,6080
Keila 0,4590