LS mótmælir makrílfrumvarpinu

Landssamband smábátaeigenda hefur sent atvinnuveganefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um stjórn veiða á NA-Atlantshafsmakríl.
Umsögn LS hefst á eftirfarand:
„Efni frumvarpsins gengur þvert á yfirlýsta stefnu og ályktanir Landssambands smábátaeigenda.  Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun það skaða vöxt og viðgang smábátaútgerðar og draga úr möguleikum hinna dreifðu byggða að nýta hinn nýja gest í íslenskri lögsögu til atvinnu- og verðmætauppbyggingar.