Stuðningur frá Bolungarvík og Grundarfirði

Stuðningur við aukinn afla til strandveiða berst víða að.  Nú síðast voru það Bolungarvík og Grundarfjörður sem lýstu stuðningi við kröfu LS um 2000 tonn aukningu til strandveiða.
Bolungarvík

„Bæjarráð Bolungarvíkur tekur undir með Landssambandi smábátaeigenda að auka eigi aflaviðmiðun „strandveiða úr 8.600 tonnum í 10.600 tonn, segir m.a. í samþykkt bæjarráðsins.   Í niðurlagi samþykktarinnar segir:  „Bæjarráð telur einnig að heppilegt væri að auka sveigjanleikann í kerfinu til að gera mönnum kleyft að stunda veiðarnar vi sem bestar veðurfarslegar aðstæður og draga þannig úr óþarfa áhættu og auka arðsemi veiðanna 
Grundarfjörður

Í samþykkt bæjarráðs Grundarfjarðarbæjar er tekið undir kröfu LS og ráðherra avinnumála hvattur til góðra verka er varða strandveiðar.