Fersk ýsa – minna framboð

Á yfirstandandi fiskveiðiári er útgefinn ýsukvóti 30.400 tonn, sem er fimmtungi minna en á fiskveiðiárinu 2013/2014.  Áhrif þessa sjást greinilega á útflutningstölum fyrir ferska ýsu á fyrsta ársfjórðungi.  Þrátt fyrir að verð fyrir hana hafi hækkað um 13% frá því í fyrra er útflutningsverðmæti 19% lægra.  
Alls voru flutt út 858 tonn af ferskri ýsu á tímabilinu janúar – mars á þessu ári.  Það er 28% minna á sömu mánuðum í fyrra.  
Útflutningsverðmæti ferskrar ýsu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs nam 1.140 milljónum sem er 261 milljónum lægra en á sama tíma í fyrra.
Bandaríkin að nálgast helming
Eins og í fyrra er mest flutt út til Bandaríkjanna.  Það vekur hins vegar athygli hversu hlutdeild þeirra hefur hækkað á milli ára.   Í fyrra var hlutdeild þeirra í heildarmamagninu 42% en er nú farin að nálgast helming, komin í 46%.   Hlutdeild Breta hefur hins vegar hrapað, var 38% í fyrra en er nú komin niður í 27%, en þeir eru eftir sem áður næst stærstu kaupendur héðan af ferskri ýsu.
Unnið upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands