Olían hækkar

Mánaðarleg verðathugun Landssambands smábátaeigenda á litaðri bátaolíu sýnir að verð fer hækkandi.  Þá kemur einnig í ljós að samkeppnisvottur hvað verð á lítra varðar er aftur orðinn sýnilegur.   Munur á hæsta og lægsta verði er 0,75% – 1,10 kr.  
Í apríl var verð hins vegar það sama hjá öllum félögunum.
OLÍS er nú með lægsta verðið 146,50 kr / lítra.  
Frá síðustu könnun hefur verð hækkað mest hjá Skeljungi um 1,9%.
Eins og í fyrri könnunum eru öll verð án afsláttar.
LS mun halda áfram verðathugun og hvetur félagsmenn að vera a verði varðandi afslætti sem fyrirtækin bjóða frá því verði sem hér er birt.   
Verð á lítra 26. maí 2015
OLÍS 146,50  kr / lítri
N1         146,60  kr / lítri
Skeljungur 147,60  kr / lítri
Screen Shot 2015-06-02 at 10.11.41.png