Strandveiðibátar rjúfa 2.000 tonna múrinn

Þrátt fyrir afar slæma tíð hafa strandveiðar skilað 2.060 tonna afla frá því þær hófust 4. maí.  Eins og sl. sumur er mest þátttaka í veiðunum á svæði A (Arnarstapi – Súðavík), þar hafa 206 bátar hafið veiðar.  
Alls eru nú 496 bátar á strandveiðum og hafa þeir farið í alls 3.780 róðra.  Meðaltalsafli í róðri er 545 kg.
Í maí voru dagatakmarkanir aðeins á svæði A, en þar mátti róa 9 daga af þeim 14 sem í boði voru.  Að loknum 6. degi strandveiða í júní hafa strandveiðar því staðið yfir í 75 daga og er afli á hvern dag yfir öll svæðin að meðaltali 129 tonn.

Screen Shot 2015-06-10 at 12.45.50.png
Það sem af er júní er búið að nýta 31% heimilda mánaðarins á svæði A, en á öðrum svæðum eru nægar veiðiheimildir eftir.
Screen Shot 2015-06-10 at 10.43.17.png