Mánaðarleg verðathugun Landssambands smábátaeigenda á litaðri bátaolíu sýnir að verð er að gefa eftir. Munur á hæsta og lægsta verði er 1,09% sem svarar 1,60 króna.
Þetta eru gleðifréttir þar sem hækkun varð á verði á tímabilinu apríl – maí.
N1 er nú með lægsta verðið 144,80 kr / lítra.
Frá síðustu könnun hefur verð lækkað mest hjá Skeljungi um 1,9%.
Eins og í fyrri könnunum eru öll verð án afsláttar.
LS mun halda áfram verðathugun og hvetur félagsmenn að vera á verði varðandi afslætti sem fyrirtækin bjóða frá því verði sem hér er birt. Komið hefur í ljós að samanburður sýnir ekki alltaf þann afslátt sem viðkomandi er sagður hafa samið um.
Verð á lítra 23. júní 2015
N1 144,80 kr / lítri
Skeljungur 144,90 kr / lítri
OLÍS 146,50 kr / lítri