Það er mat Fiskistofu að viðmiðunarafla strandveiða á svæði B verði náð að loknum veiðum nk. mánudag. Fiskistofa hefur af því tilefni auglýst í Stjórnartíðindum stöðvun strandveiða á svæði B frá og með þriðjudeginum 30. júní.
Heimilt verður að hefja veiðar aftur miðvikudaginn 1. júlí.
Að loknum veiðum í gær fimmtudag var staðan sú að 11% voru eftir alls 85,5 tonn, en síðustu dagar hafa skilað rúmum 70 tonnum.