Það var aldeilis hamagangur á bryggjunni í Garði nú í kvöld. Makríllinn mættur og vel tekið á móti honum. Fjölmenni á bryggjunni og veiði mjög góð.
Að sögn aðila á staðnum sem hefur reynslu í bryggjuveiðum á makríl er hann stærri nú en í fyrra. Það kemur heim og saman við fréttir frá uppsjávarskipunum sem nú eru farin að reyna fyrir sér í Grindavíkurdýpi.
Myndin er tekin á bryggjunni í Garði síðdegis.