Strandveiðum 2015 er lokið á svæðum A, B og C. Auglýst hefur verið að síðasti dagur veiðanna á svæðunum þrem hafi verið fimmtudagurinn 13. ágúst.
Alls stunduðu 515 bátar veiðar á þessum þremur svæðum eða 81% þeirra sem voru á veiðum á þessu sjöunda ári strandveiða.