Að undanförnu hafa tölur um útflutningsverðmæti til Rússlands mikið verið í umræðunni. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru fluttar út sjávarafurðir þangað á síðasta ári fyrir um 24 milljarða. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hafa hins vegar bent á að til Rússlands hafi verðmætið verið 30 milljarðar. Máli sínu til stuðnings hefur SFS bent á að mismunurinn liggi í sjávarafurðum sem fóru frá Íslandi gegnum Holland og Litháen áfram til Rússlands.
Í frétt Hagstofunnar „Vöruviðskipti við Rússland er greint frá því að áreiðanleiki talna frá henni byggi á upplýsingum frá útflytjendum sem ber að greina frá því í tollskýrslum hvar varan endar.
Hinn mikli munur á tölum hefur orðið til þess að Hagstofan hefur hafið rannsókn á nákvæmni upplýsinga um endastöð vörunnar. Tekið er fram í fréttinni að sú rannsókn beinist ekki að Rússlandi sérstaklega heldur fremur að háu hlutfalli Hollands í útflutningsskýrslum.
LS fagnar þessu frumkvæði Hagstofunnar og telur það vera nauðsynlegt þar sem tölur frá stofunni eiga að vera hafnar yfir allan vafa um áreiðanleika.