Matvælastofnun – MAST – hóf þann 1. júlí sl. reglubundið eftirlit með bátum og skipum sem landa ferskum afla. Eftirlitið er framkvæmt með stoð í lögum um matvæli þar sem stofnuninni er skylt að hafa eftirlit með og framfylgja reglum um öryggi matvæla og góða hollustuhætti.
Framkvæmdin verður á þann veg að farið verður um borð og gerð úttekt á búnaði, hreinlæti, vinnufatnaði, umbúðum og aðskilnaði matvæla og tækja eða efna sem menga geta mætvæli.
Hjá smábátum verður reglubundin skoðun á þriggja ára fresti og er gjaldið kr. 28.374.