Sjávarútvegsstefna Pírata hefur verið gerð opinber. Í henni er m.a. gert ráð fyrir að handfæraveiðar verði frjálsar þeim sem kjósa að stunda þær til atvinnu.
Í greinargerð með þessum lið stefnunnar segir:
„Með frjálsum veiðum einstaklinga á handfæri skal stuðlað að nýliðun ásamt kærkominni búbót fyrir gjörvallt landið. Tilgangurinn er að hafa átyllu fyrir nýja aðila til að komast inn í útgerð án þess að þurfa að standa undir útgjöldum við leigu á heimildum. Skal þetta háð skynsamlegum takmörkunum á fjölda leyfa á einstakling, lögaðila og eftir tegundum báta.
Alls er sjávarútvegsstefnan sett fram í 9 töluliðum. Auk sérstaks liðar um handfæraveiðarnar er komið inn á eftirtalið:
- Eignarhald auðlinda í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginlegt og ævarandi eign þjóðarinnar.
- Aflaheimildir skal bjóða upp til leigu á opnum markaði.
- Allur afli skal fara á markað.
- Allar upplýsingar frá vigtun og markaði skulu vera opinberar.
- Ráðgjafaráð Hafrannsóknastofnunar skal ekki skipað hagsmunaaðilum.
- Tryggja skal eftirlitshlutverk Samkeppnisstofnunar.
- Stórefla skal Landhelgisgæsluna.
- Refsivert verði að láta sjómenn taka þátt í leigu á aflaheimildum.