LS fundar með rússneska sendiherranum

Föstudaginn 21. ágúst sl. sendi Landssamband smábátaeigenda bréf til Sendiráðs Rússneska Sambandsríkisins.  Þar fór LS fram á að sendiráðið mundi hafa milligöngu um ósk félagsins til rússneskra stjórnvalda um undanþágu frá viðskiptabanni fyrir makríl sem veiddur væri af smábátum.
Í gær 31. ágúst átti LS fund með rússneska sendiherranum Anton V. Veseliev.  Þar kom m.a. fram að sendiherrann hafði sent bréfið til stjórnvalda í Moskvu og væri það þar til meðferðar.