Í hönd fer tími fundarhalda hjá smábátaeigendum. Aðalfundir bresta á hver af öðrum á næstu vikum.
Fyrst ríður á vaðið Báran í Hafnarfirði nk. laugardag 12. september. Fundurinn verður haldinn á Hótel Víking Hafnarfirði (á móti Fjörukránni) og hefst kl. 12:00.
Léttur hádegisverður er í boði félagsins.
Formaður BÁRUNNAR er Jón B. Höskuldsson
Snæfell – aðalfundur í Ólafsvík
Snæfell hefur boðað félagsmenn sína til aðalfundar nk. sunnudag 13. september. Fundurinn verður á Veitingashúsinu Hrauni Ólafsvík og hefst kl 16:00.
Snæfell er fjölmennast svæðisfélaga LS – 151 bátur í eigu félagsmanna. Það tryggir félaginu 6 fulltrúa á 31. aðalfund LS sem haldinn verður 15. og 16. október.
Félagið býður félagsmönnum til kvöldverðar að loknum fundi.
Fomaður SNÆFELLS er Valentínus Guðnason
Formaður LS og framkvæmdastjóri munu mæta á aðalfundi svæðisfélaganna. Auk venjulegra dagskrárliða aðalfunda verður nýgerður kjarasamningur um ákvæðisvinnu við línu og net kynntur og atkvæði greidd um hann.