Aðalfundir í nánd

Eins og fram hefur komið verða aðalfundir BÁRUNNAR og SNÆFELLS haldnir um helgina.
BÁRAN verður á morgun laugardaginn 12. sept. og hefst fundurinnn kl 12:00.
SNÆFELL heldur sinn aðalfund í Ólafsvík sunnudaginn 13. sept.  og hefst hann kl 16:00.
Smábátafélag Reykjavíkur
Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur verður haldinn á kaffistofu félagsins í Suðurbugt Geirsgötu 5c – mánudaginn 14. september.
Fundurinn hefst kl 20:00.
Formaður Smábátafélags Reykjavíkur er Þorvaldur Gunnlaugsson
Aðalfundur Árborgar
Aðalfundur ÁRBORGAR verður haldinn í Rauða húsinu Eyrarbakka þriðjudaginn 15. september.  
Fundurinn hefst kl 18:00.
Formaður Árborgar er Þorvaldur Garðarsson sem jafnframt er varaformaður LS
Aðalfundur Strandveiðfélagsins KRÓKS.
KRÓKUR hefur boðað til aðalfundar laugardaginn 19. september.  Fundurinn verður haldinn á Heimsenda á Patreksfirði og hefst kl 15:00.
Formaður Króks er Friðþjófur Jóhannsson
Smábátaeigendur eru hvattir til að fjölmenna á fundina 
og leggja þannig sitt að mörkum til þeirra fjölmörgu 
málefna sem framundan eru.