KRÓKUR, ELDING, STRANDIR

Aðalfundir svæðisfélaga LS standa nú sem hæst.  Um næstu helgi halda þrjú félög aðalfundi sína.  
Eins og áður er fram komið verður aðalfundur Strandveiðifélagsins KRÓKS á Patreksfirði nk. laugardag 19. september og hefst kl 15:00.
ELDING
Sunnudaginn 20. september verður haldinn aðalfundur Eldingar – félags smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum.  
Fundurinn verður á Hótel Ísafirði og hefst kl 13:00.
Formaður ELDINGAR er Sigurður Hjartarson Bolungavík  

STRANDIR
Aðalfundur Smábátafélagsins Stranda verður haldinn á Hólmavík sunnudaginn 20. september.
Fundurinn verður í  Slysavarnafélagshúsinu að Höfðagötu 9 og hefst kl 20:00.
Formaður Stranda er Haraldur Ingólfsson Drangsnesi