Kosið um kjarasamning – kjörfundur hafinn

Kjarasamningur Landssambands smábátaeigenda og Starfsgreinasambandsins um ákvæðisvinnu við línu og net hefur legið frammi frá því hann var undirritaður 2. september sl.  Einnig hefur samningurinn verið kynntur á fundum svæðisfélaga sem haldnir hafa verið.
Nú er komið að því að greiða atkvæði um samninginn.  Hægt er að greiða atkvæði símleiðis – hringja á skrifstofu LS s. 552-7922 eða með tölvupósti.  
Atkvæðagreiðsla stendur til miðnættis 5. október. 
Á kjörskrá eru félagsmenn í LS sem fengu línuívilnun á síðasta fiskveiðiári og þeir sem stundað hafa netaveiðar (þorskur – grásleppa). 
Eigi viðkomandi einn bát sem bæði hefur stundað línu- og netaveiðar hefur hann heimild til að greiða 2 sinnum, eitt atkvæði um hvorn útgerðarmáta.
Þannig að samningurinn komi til framkvæmda þurfa bæði útgerðarformin að samþykkja hann.  
Greiða með tölvupósti

Með því að blikka á þá valmöguleika sem hér eru skráðir opnast tölvupóstur.  Áður en hann er sendur ber þátttakanda að skrá skipaskrárnúmer. 
Línuveiðar Samþykki
samninginn

        Synja
samningnum

        Synja
samningnum