Austfirskir smábátaeigendur hafa löngum glímt við erfitt símasamband. Þrátt fyrir að ályktað hafi verið um málefnið og stjórnvöldum gert viðvart er ekkert lát á skuggablettum. Fjarskiptastofnun vísar á einkafyrirtækin, sem bera kostnaðinn saman við notkun á svæðinu. Ferillinn hefur enn litlum árangri skilað.
Á aðalfundi Félags smábátaeigenda á Austurlandi sem haldinn var á Neskaupstað 26. september sl. voru fjarskiptamálin í brennidepli enda einn af lykilhlekkjum í öryggisneti sjófarenda. Í umræðum um málefnið kom fram að smábátaeigendur hafa nú sjálfir ráðist í rannsóknir sem beinast að símunum sjálfum. Þeir hafa bæði verið með síma frá Vodafone og Símanum. Skemmst er frá því að segja að umtalsverður munur er á símasambandinu þegar Vodafone er annars vegar.
Það er von smábátaeigenda á Austurlandi að settur verði upp sendir á Dalatanga þannig að treysta megi á að samband verði virkt á öllu svæðinu.
Meðal ályktana sem fundurinn samþykkti að senda til 31. aðalfundar LS.:
Strandveiðar
- viðmiðunarafli verði aukinn verulega
- hægt verði að segja sig frá veiðunum og hefja aðrar veiðar
- til framtíðar verði strandveiðitímabil lengt í 6 mánuði Formaður og ritari
Veiðikerfi
- Hafna á öllum hugmyndum um sameiningu veiðikerfa svo og um kvótasetningu á grásleppu
Skoðanir – eftirlit
- LS kanni möguleika á útboði er varða einstaka liði skoðana.
- Tíðni skoðana gúmmíbjörgunarbáta verði breytt þannig að þeir verði skoðanafríri fyrstu 5 árin.
Makríll
- Aðalfundur FSA hafnar alfarið kvótasetningu á makríl til krókaveiða og minnir á kröfu LS um 16% hlutdeild í heildarafla til smábáta.
Byggðakvóti og línuívilnun
- Aðalfundur FSA hvetur LS til áframhaldandi baráttu fyrir línuívilnun til allra dagróðrabáta og að byggðakvóti verði sem ívilnun við löndun fyrir dagróðrabáta.
Stjórn Félags smábátaeigenda á Austurlandi var öll endurkjörin
Ólafur Hallgrímsson Borgarfiðir formaður
Alfreð Sigmarsson Seyðisfirði meðstjórnandi
Guðlaugur Birgisson Djúpavogi ritari
Kári Borgar Ásgrímsson Borgarfirði gjaldkeri
Sævar Jónsson Neskaupstað meðstjórnandi
Frá Neskaupstað