Lækkum olíukostnað

Landssamband smábátaeigenda hefur hrundið af stað verkefni sem nær til allra smábátaeigenda.  Það snýr að því að óska tilboða frá olíufélögunum í viðskipti við félagsmenn LS.
Undirbúningur hefur staðið yfir um nokkurt skeið þar sem leitað var til sérfræðinga á þessu sviði.  
Markmiðið er að lækka verð á olíu til félagsmanna í LS, að afslátturinn telji fleiri krónur en nú er.  Til að það takist verða smábátaeigendur að sýna mikla samstöðu og taka allir sem einn þátt í útboðinu.   
Nú þegar hafa á annað hundrað félagsmenn skráð sig til þátttöku.  
Hvernig tek ég þátt?
Með því að blikka 

 hér  opnast tölvupóstur, merktur „LS-olía-afsláttur.    Um leið og tölvupósturinn hefur verið sendur er viðkomandi kominn í hópinn.

Frétt um málið í Morgunblaðinu í dag 8. október.
Screen Shot 2015-10-08 at 12.16.28.jpg