Gæði verði tryggð

 
 
Á aðalfundi LS sem lauk sl. föstudag átti sér stað mikil umræða um væntanlegt frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um umgengni við nytjastofna sjávar 57/1996.  Vigtun, afladagbók, kæling afla og fjölmargt annað heyrir til þessara laga.
 
 
Í dag hafa 107 aðilar leyfi til endurvigtunar á afla.  Þarna er um að ræða fiskmarkaði og vinnsluaðila.  Í drögum að frumvarpi sem sjávarútvegsráðherra hefur kynnt er gert ráð fyrir þessi leyfi verði felld úr gildi og vigtun ljúki á hafnarvog með 4% ísprósentu.
 
Í umsögn LS um málefnið dags. 23. september sl var tekið undir það sjónarmið að ljúka vigtun á hafnarvog.  Eftir að aðalfundur fjallaði um málefnið og sérfræðingar LS hafa gefið álit sitt er þó ljóst að svo ófrávíkjanleg regla getur leitt til lakari gæða.  Hún kemur t.d. ekki í veg fyrir umstöflun á fiski sem gagnrýnd hefur verið.
 
 
Niðurstaða aðalfundar LS um málefnið var eftirfarandi samþykkt:
 
„Aðalfundur LS skorar á stjórnvöld að einfalda vigtarreglur og framkvæmd við vigtun á bolfiskafla, en gera engar breytingar nema tryggt sé að þær auki gæði frá því fiskur er veiddur og þar til hann er kominn á disk neytenda.
 
Frá 31. aðalfundi LS