Skiptu þorski í keilu

 
 
Lokið er úrvinnslu á tilboðum sem bárust til Fiskistofu á skiptimarkaði í október.  Óskað var eftir þorski í skiptum við aðrar tegundir.  Aðeins 203 tonn af þorski skiluðu sér að þessu sinni.   
 
 
Nokkur áhugi var að fá keilu í skiptum fyrir þorsk.  Alls fóru 75,7 tonn af henni út af markaðinum sem fékk í staðinn 27,9 tonn af þorski.  Mest safnaðist af þorski í skiptum fyrir síld, alls 145 tonn fyrir 423 tonn af síld. 
 
 
Tilboðum þar sem boðinn þorskur náði ekki 60% af þorskígildi var hafnað.