Smábátaútgerðin var rædd á Alþingi sl. miðvikudag. Það var Sigurður Páll Jónsson varaþingmaður Framsóknarflokksins í NV-kjördæmi sem kvaddi sér hljóðs undir liðnum „Störf þingsins.
Þar gefst þingmönnum tækifæri í 2 mínútna ræðu að koma ýmsu á framfæri sem brennur á þeim.
Sigurður Páll kom víða við í ræðu sinni. Hann sagði nauðsynlegt að efla einyrkjaútgerðina sem nú ætti undir högg að sækja, hann tók undir tillögur LS um strandveiðar, ræddi ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um grásleppuveiðar, síldveiðar ofl.