Þorskurinn leitar til Frakklands

Nýverið stóðu Íslandsstofa og Iceland Responsible Fisheries fyrir kynningarfundi um stöðu íslenskra sjávarafurða á Frakklandsmarkaði. 
Á fundinum flutti Marie Christine Monfort ráðgjafi í markaðssetningu sjávarafurða erindi.  Þar fjallaði hún m.a. um tækifæri Íslendinga til að ná fótfestu á værðmætari hluta franska markaðarins, einkum þar sem þorskur er í hávegum hafður.
Björgvin Þór Björgvinsson verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu greindi frá þróun útflutnings íslenskra sjávarafurða til Frakklands.  Samantekt Björgvins var öll hin fróðlegasta þar sem m.a. kom fram að verðmæti þorskafurða voru á árinu 2014 rúmlega sjöfalt meiri en þau skiluðu 2008.
Með því að vinna nánar með tölur úr fyrirlestri Björgvins kemur í ljós að verð á hvert kíló hefur þó ekki verið í stöðugri hækkun.  Hæst var það árið 2011, en þá skilaði hvert útflutt kíló af þorski 1.340 krónum, en á árinu 2014 var verðið 20% lægra.