2. tölublað Brimfaxa 2015 er á leið í pósti til félagsmanna LS. Í þessu tölublaði er ýmislegt að finna:
- Ítarlegt viðtal er við Þórð Birgisson frá Húsavík, ungan og kraftmikinn trillukarl sem skefur ekkert af hlutunum
- Magnús Jónsson veðurfræðingur og fyrrverandi Veðurstofustjóri lét drauminn rætast og fór á skak, en gerir skarplegar athugasemdir við fyrirkomulag fiskveiða og rannsókna
- Veiða / sleppa er bitbein meðal margra, en hér er umræðan tekin frá öðru sjónarhorni
- Formaður LS og framkvæmdastjóri skrifa um málefni líðandi stundar
- Grein um ný fiskimannasamtök í Evrópu – og margt fleira
Brimfaxi verður vonandi sem flestum dægrastytting yfir komandi hátíðardaga.