Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki í deilistofnum – Norðuríshafsþorski, úthafskarfa, kolmunna og norsk-íslenskri síld. Alls koma í hlut Íslands um 180 þús. tonn.
Aflamark á almanaksárinu 2016 er úthlutað á grundvelli aflahlutdeildar. Samanlagt aflamark er um 170 þús. tonn þegar dregin hafa verið frá 5,3%.
Úthlutun sbr. aflahlutdeild einstakra tegunda eru:
Norðuríshafsþorskur 7.726 tonn – slægt – 21 skip með úthlutun
Úthafskarfi 2.497 tonn – afli upp úr sjó – 22 skip með úthlutun
Kolmunni 117.887 tonn – afli upp úr sjó – 18 skip með úthlutun
Norsk-íslensk síld 41.825 tonn – afli upp úr sjó – 17 skip með úthlutun
Af einstökum skipum kemur mest í hlut Þerneyjar RE af Norðuríshafsþorski 1.164 tonn, Snæfells EA í úthafskarfa 443 tonn, Beitis NK í kolmunna með 15.367 tonn og Vilhelms Þorsteinssonar EA í norsk-íslensku síldinni 4.359 tonn.
Sjá nánar skiptingu veiðiheimilda: