Slægingarstuðull ræddur á Alþingi

Lögð hefur verið fram og mælt fyrir þingsályktun um endurskoðun á slægingarstuðlum.  Málið er endurflutt og er fyrsti flutningsmaður Ásmundur Friðriksson.
Þingsályktunin er eftirfarandi:
„Alþingi ályktar að fela sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að endurskoða reglur um slægingarstuðul og færa þær í þannig horf að staða aðila eftir svæðum verði jöfn, t.d. með því að heimila breytinlegan stuðul eftir veiðisvæðum og tímabilum.
Í greinargerð segir m.a.: 
„Líkt og fram hefur komið er mismunandi eftir því á hvaða stöðum, með hvaða veiðarfærum og á hvaða tímabili er veitt hvert slóginnihald þorsks er og því er unnt að hagnast á stuðlinum eins og hann er í dag.  Á meðan margir hafa slóginnihald sem nemur 25-30% þá eru aðrir með slóginnihald sem nemur 6-10%.  Því er unnt að hagnast á því að landa inn óslægðum afla.