Félagsfundur í Drangey

Drangey – Smábátafélag Skagafjarðar hefur boðað til félagsfundar.
Fundurinn verður haldinn á Bláfelli Sauðárkróki laugardaginn 12. mars kl 14:00.
Á fundinum verður merki félagsins kynnt, en unnið hefur verið að gerð þess um nokkurt skeið.
Helstu málefni sem á dagskrá fundarins verða eru:
  • Strandveiðar
  • Grásleppumál
  • Gjöld og álögur á smábátaútgerðina
  • Innganga nýrra félaga.
Félagsmenn í Drangey eru hvattir til að fjölmenna til fundar og sýna þannig samstöðu með baráttumálum smábátaeigenda.
Formaður Drangeyjar er Steinar Skarphéðinsson.
Á aðalfundi LS 2015 var Drangey – Smábátafélag Skagafjarðar samþykkt sem 16. svæðisfélag Landssambands smábátaeigenda

IMG_2773.jpg