Ráðherra dragi ákvörðun sína til baka

Nýlokið er fjölmennum fundi smábátaeigenda á Sauðárkróki. 
Fundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun:
Sameiginlegur fundur smábátaeigenda í Skalla og Drangey
haldinn á Sauðárkróki 16. mars 2016 mótmælir harðlega 
gerræðislegri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að seinka 
upphafstíma grásleppuvertíðar.
Í rökstuðningi með ákvörðuninni er þung ásökun um að 
grásleppusjómenn umgangist auðlindina ekki af ábyrgð.  
Fundurinn vísar því til föðurhúsanna.
Harmað er það virðingarleysi sem atvinnugreininni er sýnd
með tilkynningu með fimm daga fyrirvara um breyttan 
upphafstíma.
Fundurinn skorar á sjávarútvegsráðherra að
virða rétt grásleppusjómanna og draga ákvörðun sína
tafarlaust til baka.