Kjarasamningur undirritaður

 
 
 
Gengið hefur verið frá breytingum á kjarasamningi Landssambands smábátaeigenda og Starfsgreinasambands Íslands um ákvæðisvinnu við línu og net frá 2. september 2015.  
 
Breytingar sem nú hafa verið gerðar byggja á samkomulagi heildarsamtaka launafólks og Samtökum atvinnulífsins sem undirritað var 21. janúar 2016 og taka til launahækkana og hærra framlagi launagreiðenda í lífeyrissjóð.
 
 
  • Í stað 8,0% launahækkunar 1. maí 2016 kemur 8,7% hækkun til framkvæmda frá og með 1. janúar 2016.
 
Framlag í lífeyrissjóð:
  • Frá 1. júlí 2016   8,5%
  • Frá 1. júlí 2017  10,0%
  • Frá 1. júlí 2018  11,5%