Smábátafélag Reykjavíkur – köld kveðja frá ráðherra

Ekkert lát er á viðbrögðum svæðisfélaga LS við ákvörðun sjávarútvegsráðherra að skerða veiðiheimildir á svæði D um 200 tonn.  Í ályktun sem stjórn Smábátafélags Reykjavíkur hefur sent frá sér segir m.a.: 
„Enn undarlegri er þessi gjörningur í ljósi þess að tvö ár í röð hefur Hafrannsóknastofnun mælt þorskstofninn í hæstu hæðum. 

Ályktun Smábátafélags Reykjavíkur 
„Stjórn Smábátafélags Reykjavíkur mótmælir harðlega þeim gjörningi sjávarútvegsráðherra að færa aflaheimildir af D svæði strandveiða (sveitarfélagið Hornafjörður – Borgarbyggð).

Með þessu er hann að gera trillukörlum á þessu svæði enn erfiðara fyrir, en þekkt er að D svæðið er erfiðast viðureignar til handfæraveiða yfir sumartímann, sérstaklega á vesturhluta þess. 

Undanfarin ár hefur meðalafli á bát á D svæðinu verið lægri en á hinum þremur.  Ástæðan hefur verið fiskleysi og í fyrra óvanalega mikill smáfiskur.  
Nú, árið 2016, lítur hins vegar mun betur út en frá upphafi strandveiðanna 2009. Þetta er því köld kveðja frá hinum nýja sjávarútvegsráðherra í upphafi starfs hans.  Enn undarlegri er þessi gjörningur í ljósi þess að tvö ár í röð hefur Hafrannsóknastofnun mælt þorskstofninn í hæstu hæðum. 
IMG_1342.jpg
Stjórn Smábátafélags Reykjavíkur skorar á sjávarútvegsráðherra að draga þessa ákvörðun tafarlaust til baka. 

Líti út fyrir að eitthvað af aflaheimildum á einhverju svæðanna, hvort heldur það er á D svæði eða einhverju öðru, sé að brenna inni hefur hann í hendi að flytja þær þá á milli svæða.

Stjórn Smábátafélags Reykjavíkur vill ítreka stuðning sinn við samþykktir Landssambands smábátaeigenda um að núverandi fyrirkomulagi við strandveiðar verði breytt, þannig að leyft sé að veiða 4 daga í viku, a.m.k. 4 mánuði á ári og heildarpottar verði afnumdir. 
Reykjavík 28. apríl 2016
Stjórn Smábátafélag Reykjavíkur.
Þorvaldur Gunnlaugsson formaður
Páll Kristjánsson
Jón Magnússon
Guðmundur Jónsson
Arthur Bogason