Nýlokið er fundi forsvarsmanna LS og Gunnars Braga Sveinssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Aðalefni fundarins var að ræða um aflaviðmiðun til strandveiða sem hófu í dag sitt áttunda tímabil.
Á fundinum fór LS yfir kröfu sína um hækkun aflaviðmiðunar í þorski um 2.000 tonn. Með henni yrðu tryggðar samfelldar strandveiðar allra veiðisvæða mánudag – fimmtudags þá fjóra mánuði sem veiðarnar eru heimilar. Þá áréttaði LS ályktanir svæðisfélaga sem skorað hafa á ráðherra að draga til baka skerðingu aflaviðmiðunar á svæði D um 200 tonn.
Áætlun um veiðimagn er þó alltaf varhugavert að setja fram, eins og dagurinn í dag sýnir ágætlega, 375 eigendur strandveiðibáta tilbúnir að fara á sjó. Kaldaskítur olli því hins vegar að fjölmargir komust ekki á miðin. Þá er útlitið ekki gott fyrir næstu daga, bræla kortunum.
LS telur að með hækkun aflaviðmiðunar muni sókn verða auðveldari, ekki þurfi að sperra sig í róður vegna þess að stöðvun veiða sé fyrirsjáanleg það sem eftir lifir þann mánuðinn. Þá gefi aukið aflamagn til strandveiða einnig færi til að opna fyrir veiðarnar í apríl og september.
LS lagði mikla áherslu á að hér væri sanngjörn krafa á ferðinni sem studd væri ályktunum margra bæjarfélaga. Útgefinn heildarafli í þorski væri nú 49% hærri en hann var 2011. Hækkun aflaviðmiðunar í þorski til strandveiða þar sem 400 tonna aukning nú væri meðtalin gæfi hins vegar aðeins 18% aukningu á sama tímabili. Verði tillaga LS samþykkt nemur aukningin 42%.
Fundur LS og ráðherra var á jákvæðum nótum og ekki við öðru að búast en að félagið njóti skilning hans á ábendingum og kröfum sem það hefur barist fyrir.
Á leið á miðin frá Vestmannaeyjum