Góður afli hjá strandveiðibátum

Strandveiðibátar eru nú að veiðum á sínum 9. degi.  Á flestum stöðum hefur afli verið með afbrigðum góður og meðaltalsafli í róðri hár.  Á A svæðinu 665 kg og D litlu lægri 654 kg.   Þegar staðan var tekin eftir 8 daga var heildaraflinn 1.387 tonn og aflahæstu bátarnir voru komnir með rúm 7 tonn.
Þátttaka í veiðunum er góð en 490 bátar hafa landað afla.   Meðaltalsafli á bát er þannig 2,8 tonn.  Flestir bátanna róa á svæði A, en þar hafa alls 203 bátar virkjað strandveiðileyfið.   Hæsta meðaltal á bát er hins vegar á svæði D 3,4 tonn.
Búast má við að afli í dag geti farið í 300 tonn þar sem rjómablíða er á miðunum og flestir á sjó.  
Samantekt sem taflan hér að neðan sýnir er byggð á tölum frá Fiskistofu sem bárust LS kl 08:00 í morgun 18. maí.
Screen Shot 2016-05-18 at 10.10.27.png