Fiskistofa hefur tilkynnt að strandveiðar séu óheimilar á svæði A frá og með 20. maí til mánaðamóta.
Það er mat stofunnar að viðmiðurafla fyrir svæðið verði náð að loknum veiðum í dag. Af því tilefni hefur Fiskistofa boðað birtingu auglýsingar sem mun birtast í Stjórnartíðindum síðar í dag.
Að loknum veiðum í gær 18. maí var staðan sú að 8% átti eftir að veiða alls 65 tonn. Þann dag var veiði mjög góð alls 139 tonn hjá 187 bátum.