Mikil umræða hefur verið meðal sjómanna um góða veiði á þorski ár eftir ár. Yfirstandandi fiskveiðiár virðist slá öll fyrri met. Takmarkaðar aflaheimildir koma ekki í veg fyrir að hægt er að tala um landburð dag eftir dag.
Sögur sagðar að það hafi tekið 1 klukkustund og 8 mínútur að ná skammtinum í strandveiðum, togað hafi verið í 10 mínútur og aflinn 20 tonn. Þessi aðilar aldrei lent í öðru eins.
Líkt og undanfarin ár reyna útgerðaraðilar að dreifa veiðinni, taka ekki of mikið á stuttum tíma. Áhugavert er að því tilefni að skoða dreifingu þorskveiða á fyrstu 9 mánuði fiskveiðiársins, september – maí.
Bætt er við þeim 10% sem kvótinn var aukinn um flesta mánuðina að nóvember undanskildum. Minna er nú veitt í mars en bætt við í apríl, líklega hafa páskarnir haft mikið að segja um það. Páskadag bar upp á 5. apríl í fyrra, en var í ár 26. mars.
Súluritið er frá Fiskistofa